Bavörðurinn Tony Harris til Keflavíkur
Keflavík hefur komist að samkomulagi við bakvörðinn Tony Harris um að hann leiki með liðinu í vetur. Tony er 180 sm bakvörður og kemur frá Tennessee háskólanum, þeim sama og Damon Johnson lék með. Tony á ýmis met þar og var fyrir efsta árið sitt valinn í þriðja stjörnulið yfir alla 1. deildarskóla.
Eins og kom fram hér fyrir nokkru var Keflavík búið að komast að samkomulagi við Jesse King en sá leikmaður ákvað að hætta við á síðustu stundu.