Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Bardagahús verður til í Reykjanesbæ
Laugardagur 13. október 2012 kl. 16:59

Bardagahús verður til í Reykjanesbæ

Júdódeild UMFN og Taekwondodeild Keflavíkur fá langþráða æfingaaðstöðu

Júdódeild UMFN og Taekwondodeild Keflavíkur hafa fengið afhenta langþráða æfingaaðstöðu að Iðavöllum 12 í Reykjanesbæ, en húsið er 430 fermetrar að stærð.

Framkvæmdir við að breyta húsnæðinu í æfingaaðstöðu fyrir júdó og taekwondo eru þegar hafnar og gert ráð fyrir því að fyrsta æfingin geti farið fram um næstu mánaðarmót. Stjórnarfólk í báðum deildum mun aðstoða við þessar breytingar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar skipaði starfshóp á dögunum sem kannaði heppilegt húsnæði fyrir þessar bardagaíþróttir og tók þá mið af stærð hússins og staðsetningu vegna akstursleiða stætisvagna. Starfshópurinn lagði til að Iðavellir 12 yrðu teknir á leigu til a.m.k. þriggja ára og var það samþykkt. Viðbótarkostnaður umfram það sem hingað til hefur verið greitt vegna æfingahúsnæðis fyrir þessar deildir er 2 milljónir króna.

Júdódeild UMFN, sem stofnuð var 8.desember árið 2010,  fékk nýlega viðurkenningu ÍSÍ sem Fyrirmyndafélag en taekwondódeildin, sem var stofnuð í október árið 2000, fékk fyrst slíka viðurkenningu árið 2004. Um 130 börn eru virk hjá júdódeildinni og eru þau flest á grunnskólaaldri. Þjálfarar eru Guðmundur Stefán Gunnarsson og Birkir Freyr Guðbjartsson. Júdódeildin hefur unnið til 11 Íslandsmeistaratitla frá stofnun hennar.

Alls æfa 106 börn hjá taekwondodeildinni. Aðalþjálfarar deildarinnar eru Helgi Rafn Guðmundsson og Rut Sigurðardóttir. Árangur í einstaklingskeppnum hefur verið glæsilegur undanfarin ár en alls hefur taekwondofólk unnið 66 Íslandsmeistaratitla og 11 bikararmeistarartitla, en í félagakeppnum hefur deildin orðið fjórum sinnum Íslandsmeistari og fjórum sinnum bikarmeistari.

Þriðja bardagaíþróttin, hnefaleikarnir, er með ágætis aðstöðu í gömlu Sundhöllinni samkvæmt samningi við núverandi eigendur hússins. Alls æfa 20 grunnskólabörn svokallað Krakkabox en að auki er iðkendafjöldi eldri boxara um 50 talsins.