HSS
HSS

Íþróttir

Baráttusigur Keflavíkurstúlkna
Laugardagur 7. júlí 2007 kl. 14:51

Baráttusigur Keflavíkurstúlkna

Keflavíkurstúlkur halda sterkri stöðu sinni í Landsbankadeild kvenna, en þær eru í 3. sæti eftir sigur á Fylki í gærkvöldi, 2-1.

Fylkisstúlkur komust yfir, gegn gangi leiksins þegar Anna Björg Björnsdóttir skoraði með skoti úr vítateig á 27. mín.

Björg Ásta Þórðardóttir jafnaði svo leikinn skömmu síðar með góðu skallamarki en eftir það var leikurinn í járnum og mikil barátta um allan völl.

Danka Podovac kom svo Keflvíkingum yfir með fallegu marki, beint úr aukaspyrnu, á 53. mínútu.

Það sem eftir lifði leiks var Keflavíkurliðið meira með boltann, en Fylkisstúlkur ógnuðu nokkrum sinnum með skyndisóknum.

Björg Ásta sagði í viðtali við Víkurfréttir að þær hefðu eflaust getað skorað fleiri mörk í leiknum. „Við sóttum mjög stíft á það og fengum færi sem við hefðum getað nýtt betur. En við við fengum þrjú stig og það var það sem við vildum.“

Björg Ásta bætti því við að þriðja sætið á þessum tímapunkti á mótinu væri framar þeirra vonum. „Við stefndum að 3. til 4. sætinu og það er gaman að það hafi gengið svo vel hjá okkur. Það sem er samt skemmtilegast er að deildin er mjög jöfn og skemmtileg þar sem liðin fyrir neðan þau tvö efstu geta öll unnið hvort annað og allir leikir eru spennandi. Það hef ég aldrei upplifað áður.“

VF-myndir/Þorgils

 

 

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn