Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Bandaríkjamaður og Ástrali á leið til Keflavíkur
Miðvikudagur 19. september 2007 kl. 09:12

Bandaríkjamaður og Ástrali á leið til Keflavíkur

Keflvíkingar hafa náð samkomulagi við Bandaríkjamann og Ástrala um að spila með liðinu á komandi tímabili í Iceland Express deild karla í körfuknattleik. Bandaríkjamaðurinn heitir B.A Walker og kemur frá Virginia Commonwealth háskólanum. Walker spilar stöðu skotbakvarðar og leikstjórnanda. Hann er 23 ára og 180 sm að hæð.

 

Ástralinn heitir Anthony Susnjara og spilaði með liði í Ástralíu sem heitir Sydney Kings. Susnjara er 26 ára og 205 sm og spilar stöðu framherja/miðherja. Collin, Walker og Susnjara eru væntanlegir til landsins næstu daga.

 

www.keflavik.is

 

 

 

 

 

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024