Baldur til Bryne
Knattspyrnumaðurinn Baldur Sigurðsson er genginn til liðs við norska liðið Bryne. Baldur er búinn að skrifa undir samning við Bryne og búið er að ganga frá samningum milli félaganna.
Brotthvarf Baldurs er gríðarleg blóðtaka fyrir Keflvíkinga sem ekki hafa unnið leik í Landsbankadeildinni í átta vikur. Á heimasíðu Keflavíkur segir að félagið hafi fengið gott tilboð í Baldur og í kjölfarið hafi leikmaðurinn ákveðið að fara til Bryne.
VF-Mynd/ Jón Björn Ólafsson - [email protected] - Baldur á Laugardalsvelli í gærkvöldi í leik Fram og Keflavíkur.