Bæjarstjóri vígir nýja völlinn
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, mun taka fyrsta skotið á nýjan og glæsilegan útikörfuboltavöll á hádegi á morgun. Nýji völlurinn er staðsettur við Holtaskóla í Reykjanesbæ og hafa þeir Tómas Tómasson og Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari, verið í óðaönn við að undirbúa völlinn. Sigurður og Tómas hafa notið dyggrar aðstoðar tæknimanna frá fyrirtækinu Sport Court í Bandaríkjunum sem framleiða Power game flísarnar sem prýða völlinn.
Eins og Víkurfréttir hafa þegar greint frá er völlurinn við Holtaskóla sá fyrsti sinnar tegundar á landinu og af þeim sökum ákváðu Sigurður og Tómas að hafa völlinn í íslensku fánalitunum. Þegar Árni Sigfússon hefur tekið fyrsta skotið verður völlurinn opnaður fyrir almenningi og þar verða m.a. leikmenn frá toppliðum Njarðvíkur og Keflavíkur í Iceland Express deildinni sem ætla að spreyta sig á vellinum.