Badui meiddur
Varnarmaðurinn Badui Farah er meiddur og verður líklega ekki með Keflvíkingum á morgun þegar Reykjanesrimman gegn Grindavík fer fram. Meiðsli Farah koma á frekar óheppilegum tíma því Kenneth Gustafsson er enn meiddur en báðir leika þeir í varnarlínunni.
Farah tognaði smávægilega aftan á læri í 2-1 sigri Keflavíkur á Víkingum s.l. föstudag og er vonast til þess að þetta sé aðeins einn leikur sem Farah missir af en hann átti fantagóðan leik gegn Víkingum.
VF-mynd/ Hilmar Bragi: Badui í skallaeinvígi gegn Víkingi