Auðveldur sigur hjá Reyni
Reynir sigraði ÍH 4-0 á heimavelli í kvöld í 3. deild karla í knattspyrnu. Mörk Reynis skoruðu Vilhjálmur Skúlason, Smári Guðmundsson, Eysteinn Guðvarðsson og eitt markanna var sjálfsmark. Reynismenn réðu gangi leiksins og voru mun betri aðilinn í leiknum eins og tölurnar gefa til kynna.Reynismenn eru í efsta sæti B-riðils 3. deildar með 13 stig eftir fimm umferðir og eru enn taplausir, hafa sigrað í fjórum leikjum og gert eitt jafntefli.