Bygg
Bygg

Íþróttir

Auðveldur Njarðvíkursigur í Ljónagryfjunni
Miðvikudagur 23. febrúar 2005 kl. 22:41

Auðveldur Njarðvíkursigur í Ljónagryfjunni

Njarðvíkurstúlkur áttu ekki í teljandi vandræðum með botnlið KR í 1. deild kvennakörfunnar í kvöld. Leiknum lauk með 25 stiga sigri Njarðvíkur í Ljónagryfjunni, 77-52, en sigurinn dugði ekki til þar sem Haukar unnu sinn leik í Grindavík. Það verða því Keflavík, ÍS, Grindavík og Haukar sem leika í úrslitakeppninni.

 

Eitthvað virtist sóknarleikurinn vera að flækjast fyrir liðunum í upphafi leiks en fyrstu stigin litu ekki dagsins ljós fyrr en tæpar tvær mínútur voru liðnar af leiknum. Njarðvíkurstúlkur beittu pressuvörn eftir skoraðar körfur og í stöðunni 18-8, Njarðvík í vil, fékk Vera Janjic, leikmaður Njarðvíkur sína 3 villu og hélt á bekkinn. Staðan að loknum 1. leikhluta var 21-10 fyrir heimaliðið og ljóst í hvað stefndi.

 

Í upphafi 2. leikhluta fékk Janjic sína fjórðu villu og kom ekki meira við sögu í fyrri hálfleik. Njarðvíkurliðið jók forystu sína gegn, að því er virtist, áhugalausu KR liði sem reyndi að svara með pressuvörn undir lok leikhlutans en það var helst til of seint þrátt fyrir að pressan hafi skilað nokkrum boltum. Liðin héldu svo til hálfleiks í stöðunni 38-21.

 

Janjic títtnefnda var ekki lengi að útskúfa sig frá leiknum en hún fékk sína fimmtu villu eftir að hafa verið inn á leikvellinum í 10 sekúndur í 3. leikhluta. Það kom ekki að sök og sigur Njarðvíkinga var aldrei í hættu.

 

Fyrir þessa umferð var ljóst að KR myndi falla en þrátt fyrir sigurinn í kvöld þá komast Njarðvíkurstúlkur ekki í úrslitakeppnina en þær mega vera sáttar við sína frammistöðu í vetur enda ungt og efnilegt lið þar á ferðinni.

 

Tölfræði leiksins

 

VF-myndir/ Jón Björn, [email protected]

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn