Átta mörk í sigri Njarðvíkinga
Njarðvíkingar báru sigurorð af Grundfirðingum í Borgunarbikar karla í knattspyrnu í gær í miklum markaleik. Leikurinn fór fram á Grundarfirði en gestirnir frá Njarðvík höfðu 2-6 sigur þar sem öll mörkin nema eitt komu í seinni hálfleik.
Njarðvíkingar komust yfir í lok fyrri hálfleiks en þar var á ferðinni Stefán Birgir Jóhannesson. Á 15 mínútna kafla í síðari hálfleik skoruðu Njarðvíkingar svo fjögur mörk. Fyrst skoruðu þeir Arnór Svansson og Stefán Birgir aftur, svo fengu Njarðvíkingar tvívegis víti sem Leonard Sigurðsson sá um að nýta. Staðan því orðin 0-5 og hálftími til leiksloka. Grundfirðingar náðu að klóra í bakkann með tveimur mörkum með skömmu millibili en það var svo Aron Freyr Róbertssson sem innsiglaði sigur Njarðvíkinga með marki í blálokin.