Átta Íslandsmeistaratitlar til ÍRB
Sundfólkið úr ÍRB var að standa sig gríðarlega vel á innanhúsmeistaramótinu í 50m laug ( IM 50 ) nú um helgina. Alls unnu sundmenn ÍRB til átta íslandsmeistaratitla. Í úrslitum átti ÍRB alls 48 sund og í 43 tilfellum af 48 var góð bæting. Í lokahófi mótsins var Gunnar Örn Arnarson úr ÍRB valinn efnilegasti sundmaður mótsins.
Verðlaunahafar ÍRB voru sem hér segir:
Birkir Már Jónsson: Íslandsmeistari í 200m flugsundi og 200m skriðsundi.
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson: Silfur í 200m baksundi.
Erla Dögg Haraldsdóttir: Íslandsmeistari í 100 og 200 bringusundi og 200 og 400m fjórsundi, silfurverðlaun í 50m bringusundi.
Guðni Emilsson: Bronsverðlaun í 100 og 200m bringusundi.
Helena Ósk Ívarsdóttir: Íslandsmeistari í 50m bringusundi og silfur verðlaun í 100 og 200m bringusundi.
Hilmar Pétur Sigurðsson: Íslandsmeistari í 1500m skriðsundi og bronsverðlaun í 400m fjórsundi.
Jón Oddur Sigurðsson: Silfurverðlaun í 50m bringusundi.
Birkir Már Jónsson náði þar með lágmarki inn á Evrópumeistaramót unglinga með árangrinum í 200m skriðsundi.
Mynd: Gunnar Örn Arnarson, efnilegasti sundmaður mótsins.