Atli Eðvaldsson hættur hjá Reyni Sandgerði
Sonur hans tekur líklega við liðinu
Atli Eðvaldsson mun ekki þjálfa 2. deildar lið Reynis Sandgerði áfram. Líklegt þykir að Egill, 31 árs gamall sonur Atla takið við keflinu og stýri liðinu.
„Þetta var sameiginleg ákvörðun um að hann hætti með liðið, það er eftirsjá í Atla en hann hefur unnið mjög gott starf hérna,“ sagði Sigurður Jóhannsson varaformaður knattspyrnudeildar Reynis í samtali við vefsíðuna 433.is.
Atli tók við liðinu fyrir tæpu ári síðan en undir hans stjórn hafnaði liðið í 8. sæti 2. deildar. Hér að neðan má sjá viðtal sem Víkurfréttir tóku við Atla eftir síðasta leik sumarsins gegn Njarðvíkingum.