Íþróttir

Ástrós og Bjarni taekwondo fólk ársins á Íslandi
Laugardagur 28. desember 2013 kl. 10:11

Ástrós og Bjarni taekwondo fólk ársins á Íslandi

Annað árið í röð koma þau bestu frá Keflavík

Annað árið í röð koma bæði taekwondo karl og kona ársins frá Keflavík. Að þessu sinni urðu hlutskörpust Bjarni Júlíus Jónsson og Ástós Brynjarsdóttir bæði frá taekwondodeild Keflavíkur en taekwondosamband Íslands greindi frá þessu fyrir skömmu.

Bjarni Júlíus er einn sigursælasti ungi keppandi landsins. Hann er mjög duglegur að keppa erlendis og keppir undantekningalaust á mótum innanlands með góðum árangri. Bjarni var valinn besti keppandinn á síðasta Íslandsmót, annað árið í röð, og svo varð hann Norðurlandameistari á árinu auk þess að vera valinn keppandi mótsins á tvemur bikarmótum ársins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ástrós Brynjarsdóttir var valin taekwondo kona Íslands árið 2012. Hún hefur sýnt fram á langtum besta árangur sem nokkur íslensk taekwondo kona hefur náð á einu ári frá upphafi. Á árinu 2013 var hún valin besta keppandinn á öllum bikarmótunum sem voru haldin, á Íslandsmótinu í tækni og á Reykjavik international games sem er alþjóðlegt mót. Ástrós varð Norðurlandameistari á árinu, en hún keppni auk þess á tvennum Evrópumótum og þremur alþjóðlegum mótum. Ástrós er mikið efni og hefur sýnt ótrúlegan vilja og bætingar á árinu. Hún hefur æft með Ólympíukeppendum og heimsklassa þjálfurum, vakið athygli fyrir góða tækni hvar sem hún fer og sigrað hvert mótið á fætur öðru. Það er augljóst að hér er á ferðinni ein efnilegasta íþróttakona landsins.