Ásgeir og Hulda fá styrk úr Afreksmannasjóði Voga
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hefur ákveðið að veita tvo styrki úr Afreksmannasjóði sveitarfélagsins en styrkþegar eru þau Hulda Hrönn Agnarsdóttir sundkona og Ásgeir Örn Þórsson júdómaður.
Hvort um sig fá þau Ásgeri og Hulda 50.000 krónur en styrkirnir verða afhenti á fundi bæjarstjórnar þann 5. júní næstkomandi.