Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Íþróttir

Ásdís Lilja semur við CB Tenerife Central
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 9. október 2023 kl. 09:28

Ásdís Lilja semur við CB Tenerife Central

Í síðustu viku undirritaði Ásdís Lilja Guðjónsdóttir, fimmtán ára körfuknattleiksstúlka úr Keflavík, samning við unglingalið CB Tenerife Central sem spilar í spænsku úrvalsdeildinni. Ásdís undirgekkst læknisskoðun og mætti svo til æfinga CB um miðja síðustu viku og lék sinn fyrsta leik með liðinu um helgina í tapleik gegn núverandi Spánarmeisturum, Spar De Gran Canaria. 

Ásdís Lilja kemur upp úr hinu margrómaða kvennastarfi körfuknatleiksfélags Keflavíkur. Hún vakti athygli spænska liðsins þegar hún var stödd í æfingarbúðum í Tenerife síðastliðið sumar þar sem leikinn var æfingaleikur gegn CB. Í kjölfarið settu forsvarsmenn CB Tenerife sig í samband við forráðamenn Keflavíkur til að kanna möguleikana á því að fá hana til liðs við sig og eftir að hafa rætt málin innandyra lá skýr ákvörðun fyrir. 

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Ásdís er fædd árið 2008 og hún var hluti af undir fimmtán ára landsliði Íslands í sumar. Ásdís Lilja er leikstjórnandi/bakvörður og er jafnframt nemandi í 10. bekk í Holtaskóla í Keflavík. Hún mun því klára sína grunnskólagöngu á Spáni samhliða körfuboltanum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn