Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Arnór Ingvi og Sigurbergur hjá Sandnes í Noregi
Myndin af þeim félögum var tekin eftir æfingu í morgun.
Miðvikudagur 18. júlí 2012 kl. 18:02

Arnór Ingvi og Sigurbergur hjá Sandnes í Noregi

Þeir Arnór Ingvi Traustason og Sigurbergur Elísson, leikmenn Keflavíkur munu dvelja hjá Sandnes Ulf í Noregi til 20. júlí nk. Strákarnir verða til reynslu hjá norska liðinu og munu æfa með því þessa daga.

Sandnes Ulf leikur í ár í efstu deild í Noregi í fyrsta sinn frá árinu 1940 en félagið kemur frá Sandnes sem er rétt sunnan við Stavanger.  Steinþór Þorsteinsson leikur með liðinu en hann lék með Breiðablik og Stjörnunni á sínum tíma og þá er Gilles Mbang Ondo fyrrverandi leikmaður Grindavíkur einnig í herbúðum Sandnes.

Þeir Arnór Ingvi og Sigurbergur eru tveir af efnilegustu leikmönnum Keflavíkur en þeir eru 19 og 20 ára gamlir. Arnór Ingvi er þegar orðinn fastamaður í Keflavíkurliðinu og á að baki 29 leiki í efstu deild og hefur skorað í þeim sex mörk. Sigurbergur skráði sig á spjöld sögunnar þegar hann lék sinn fyrsta leik í efstu deild árið 2007 en hann varð þá yngsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar. Hann hefur átt erfitt uppdráttar vegna meiðsla undanfarin ár en hefur náð sér vel á strik í sumar og skoraði á dögunum fyrsta mark sitt í efstu deild þar sem hann er kominn með 15 leiki.

Public deli
Public deli