HSS
HSS

Íþróttir

Arnór Ingvi framlengir hjá Keflavík
Arnór Ingvi í leik með Keflavík síðastliðið sumar. VF-Mynd
Laugardagur 16. febrúar 2013 kl. 07:22

Arnór Ingvi framlengir hjá Keflavík

Arnór Ingvi Traustsson hefur framlengt samning sinn við Keflavík um eitt ár og er því samningsbundinn félaginu til ársloka 2014.

Arnór Ingvi verður tvítugur í apríl næstkomandi en hann var í lykilhlutverki hjá Keflavík á síðasta tímabili.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þá fór Arnór Ingvi á kostum fyrri hluta sumars og var í kjölfarið lánaður til Sandnes Ulf þar sem hann lék tíu leiki í norsku úrvalsdeildinni.

Arnór Ingvi, sem er í U21 árs landsliði Íslands, hefur þegar leikið 33 leiki fyrir Keflavík í efstu deild og skorað í þeim sex mörk.