Bygg
Bygg

Íþróttir

Arnór fann sig vel á vinstri kantinum
Arnór í leik með Keflavík.
Föstudagur 7. júní 2013 kl. 09:05

Arnór fann sig vel á vinstri kantinum

Færi ekki í frí til Armeníu

Keflvíkingurinn Arnór Ingvi Traustason var í byrjunarliðinu hjá U21 liði Íslands í knattspyrnu sem sigraði Armeni í gær 2-1 ytra. Arnór lék í 70 mínútur í leiknum en hann var í stöðu vinstri kantmanns. Arnór segist hafa fundið sig vel í leiknum en aðstæður í Armeníu voru erfiðar enda 30 gráðu hiti þegar leikurinn hófst. „Það er mjög erfitt að spila við svona aðstæður en þetta er bara skemmtilegt,“ sagði Arnór í samtali við Víkurfréttir þegar liðið var að leggja í heimför. Leikurinn einkenndist af miklum barningi og segir Arnór baráttuna í íslenska liðinu hafa skilað sigrinum. Arnór segir stemninguna í liðinu vera mjög góða og að allir séu góðir vinir í hópnum. „Þetta er samheldinn hópur og við gerum allt saman sem ein heild. Það er mikill agi í hópnum.“

Varðandi landið Armeníu þá leist Arnóri ágætlega á land og þjóð. „Þetta er ekki land sem maður fer i frí til, en það er skemmtilegt að fá tækifæri til að heimsækja svona land, en Armenía er í heild sinni er bara mjög fínt land,“ sagði Arnór að lokum áður en hann þurfti að rjúka á liðsfund.

Bílakjarninn
Bílakjarninn