Bygg
Bygg

Íþróttir

Arnór ekki með vegna meiðsla
Þriðjudagur 8. október 2013 kl. 19:25

Arnór ekki með vegna meiðsla

Efnilegasti maður Pepsi-deildarinnar ekki með Íslendingum

Miðjumaður Keflvíkinga, Arnór Ingvi Traustason, mun ekki leika með U21 liði Íslands sem mætir Frökkum þann 14. október. Arnór er óleikhæfur sökum meiðsla sem hann hlaut í leik gegn ÍBV í Pepsi-deildinni þann 22. september.

Þá var Arnór fluttur af velli og burtu í sjúkrabíl eftir harkalega tæklingu frá leikmanni ÍBV. Arnór hefur átt fast sæti í liði Íslands sem háir nú baráttu í undankeppni EM.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Arnór var á dögunum valinn efnilegasti leikmaður Pepsi-deildarinnar í ár en hann lék mjög vel með liði Keflvíkinga.

Hér má sjá tæklinguna sem orsakaði meiðslin.