Bygg
Bygg

Íþróttir

Arnór og Samúel í landsliðshópnum gegn Englandi og Belgíu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 28. ágúst 2020 kl. 13:54

Arnór og Samúel í landsliðshópnum gegn Englandi og Belgíu

Arnór Ingvi Traustason og Samúel Kári Friðjónsson eru báðir í íslenska landsliðshópnum í knattspyrnu sem kynntur var í dag. Ísland leikur gegn Englandi 5. september á Laugardalsvelli og svo gegn Belgum í Brussel 8. september.

Arnór hefur verið inni og út úr byrjunarliði Malmö í Svíþjóð undanfarnar vikur. Samúel Kári kom til Paderborn í Þýskalandi fyrr á þessu ári en liðið féll niður í næst efstu deild í vor.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Mark­menn:

Hann­es Þór Hall­dórs­son | Val­ur
Ögmund­ur Krist­ins­son | Olymp­iacos
Rún­ar Alex Rún­ars­son | Dijon FCO
Pat­rik Sig­urður Gunn­ars­son | Brent­ford

Varn­ar­menn:

Ari Freyr Skúla­son | KV Oost­ende
Hörður Björg­vin Magnús­son | CSKA Moskva
Kári Árna­son | Vík­ing­ur R.
Guðlaug­ur Victor Páls­son | SV Darmsta­dt 98
Sverr­ir Ingi Inga­son | PAOK
Hólm­ar Örn Eyj­ólfs­son | Levski Sofia
Jón Guðni Fjólu­son
Al­fons Samp­sted | Bodø/ Glimt
Hjört­ur Her­manns­son | Brönd­by

Miðju­menn:

Samú­el Kári Friðjóns­son | Pader­born
Birk­ir Bjarna­son | Brescia
Emil Hall­freðsson
Andri Fann­ar Bald­urs­son | Bologna
Arn­ór Ingvi Trausta­son | Mal­mö FF
Arn­ór Sig­urðsson | CSKA Moskva
Jón Dag­ur Þor­steins­son | AGF
Mika­el Neville And­er­son | Midtjyl­l­and

Sókn­ar­menn:

Jón Daði Böðvars­son | Millwall
Kol­beinn Sigþórs­son | AIK
Hólm­bert Aron Friðjóns­son | Aalesund
Al­bert Guðmunds­son | AZ Alk­ma­ar