Arngrímur Guðmundsson nýr formaður knattspyrnudeildar UMFN
Bjarni Sæmundsson lét af formennsku knattspyrnudeildar UMFN eftir tveggja ára starf og tók Arngrímur Guðmundsson við sætinu en aðalfundur knattspyrnudeildarinnar fór fram í gærkvöldi.
Arngrímur hefur áður setið í aðalstjórn UMFN ásamt fjölda annara félagsstarfa. Andrés Ari Ottósson lét einnig af störfum. Þeir sem sitja í aðalstjórn deildarinnar eru eftirfarandi:
Arngrímur Guðmundsson formaður
Ólafur Thordersen varaformaður
Sighvatur Gunnarsson fjármálastjóri
Magnús Þ. Kristófersson ritari
Annað var óbreytt.
Mynd frá umfn.is