Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Arnar tók bronsið í Wales
Mynd/JBO Arnar Helgi á palli ásamt Mickey Bushell sem tók silfrið og Frakkanum Pierre Fairbank.
Föstudagur 22. ágúst 2014 kl. 10:54

Arnar tók bronsið í Wales

Kom skemmtilega á óvart

Keflvíkingurinn Arnar Helgi Lárusson vann bronsverðlaun í flokki T53 á Evrópumeistaramóti fatlaðra í Swansea. Í braut kom Arnar fimmti í mark við erfiðar aðstæður, talsverða rigningu og mótvind, en þegar öll kurl voru komin til grafar höfðu ítalskur og franskur keppandi verið dæmdir úr leik fyrir línubrot.

Arnar varð því þriðji af þeim keppendum sem gerðu löglega keppni á mótinu og fagnaði því sínum fyrstu verðlaunum á stórmóti. „Kom skemmtilega á óvart að fá brons, eftir að keppa í erfiðum aðstæðum, bæði rigningu og mótvind en ég hélt mig inná brautinni og varð því þriðji,“ sagði Arnar á facebook-síðu sinni eftir keppni.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Við þessar aðstæður voru allir keppendur í greininni talsvert frá sínu besta svo Íslandsmetin hjá Arnari í 100 og 200 metra hjólastólakappaskri geta sofið vært næstu nætur en miðað við ganginn í okkar manni verður það ekki lengi. Ifsport.is greinir frá.