Arnar Helgi og Theodór Guðni verða áfram í Njarðvík
Þeir Arnar Helgi Magnússon og Theodór Guðni Halldórsson hafa báðir náð samkomulagi við knattspyrnudeild Njarðvíkur um að leika með félaginu áfram á næsta tímabili.
Njarðvík segir í tilkynningu að þetta sé mikill fengur fyrir félagið enda var Arnar Helgi valinn leikmaður ársins á síðasta tímabili og Theodór Guðni var markahæsti leikmaður liðsins.