Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Arnar Helgi náði ekki í úrslit
Fimmtudagur 25. júlí 2013 kl. 14:27

Arnar Helgi náði ekki í úrslit

Arnar Helgi Lárusson hefur lokið keppni á Heimsmeistaramóti fatlaðra í frjálsum sem nú stendur yfir í Lyon í Frakklandi. Arnar Helgi keppti í undanrásum í 100m. spretti í morgun og komst ekki í úrslit en hann kom í mark á tímanum 19,43 sek. Besti tími Arnars í greininni er 19,01 sek. sem hann náði á opna þýska meistaramótinu fyrr í sumar.

Arnar kemur því heim með eitt Íslandsmet í farteskinu í 200m spretti en hann var nokkuð sáttur við sinn hlut í dag og kvaðst reynslunni ríkari eftir heimsmeistaramótið. Hann sagðist enn vera að vinna í stillingum á legunni í stólnum og að bæta eigin færni í sprettinum. Næst á dagskránni er að keyra nokkrar lengri vegalengdir í haust og taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

ifsport.is greinir frá.