Arnar Helgi á EM í Wales
Ísland mun eiga þrjá fulltrúa á Evrópumeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum þetta sumarið en mótið fer fram í Swansea í Wales í ágúst. Þeirra á meðal er Arnar Helgi Lárusson frá Nes. Arnar keppir í hjólastólakappakstri (e. Wheelchair Racing) og mun hann keppa í 100m. og 200m. hjólastólakappakstri. Arnar setti ný Íslandsmet í báðum greinum í Sviss í maímánuði en Íslandsmet hans í 100m. er 18,65 sek. og Íslandsmet hans í 200m. er 34,55 sek. Sem stendur er Arnar með 26. besta tíma ársins í 100m. og 23. besta tíma ársins í 200m.