HSS
HSS

Íþróttir

Arnar Freyr stigahæstur í sigurleik
Miðvikudagur 31. október 2012 kl. 13:31

Arnar Freyr stigahæstur í sigurleik

Keflvíkingurinn Arnar Freyr Jónsson sem leikur körfuknattleik með BC Aarhus í dönsku úrvalsdeildinni var stigahæstur í sigri liðsins á Værlöse BBK í gær. Arnar skoraði 17 stig í leiknum sem endaði 71-68 en auk þess að skora 17 stig var Arnar með 7 stoðsendingar í leiknum.

Arnar fór til Danmerkur í haust og virðist vera í fínu formi um þessar mundir en hann glímdi við erfið meiðsli í fyrra með Keflvíkingum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn
Eftir leikinn í gær er BC Aarhus í 6. sæti deildarinnar með 4 sigra og 5 tapleiki.