Arnar Freyr skrifar undir hjá Keflavík
Leikstjórnandinn Arnar Freyr Jónsson skrifaði í gær undir samning um að leika með Keflavík á komandi leiktíð í Dominos deild karla í körfubolta. Arnar Freyr er uppalinn Keflvíkingur og hefur leikið nánast allan sinn feril í Keflavík að undanskildum nokkrum árum þar sem hann lék með Grindavík og í Danmörku. Heimasíða Keflavíkur greinir frá.
Arnar kom inn í mitt tímabil í fyrra og lék átta leiki í deild og þrjá leiki í úrslitakeppni, þar sem frammistaða hans óx með hverjum leik. Arnar kveðst í samtali við heimasíðu Keflavíkur virkilega spenntur fyrir komandi tímabili og segir hann deildina eiga eftir að verða spennandi; „Mér líst rosalega vel á deildina í vetur enda fullt af góðum liðum.“
	Andy Johnston tók við liðinu í ágúst sl. og hefur hann nú stýrt liðinu í fjórar vikur, hvernig lýst Arnari Frey á nýja þjálfarann?
	„Andy er að gera góða hluti með okkur. Hann er með nýjar áherslur og leikkerfi sem við eigum eftir að detta betur inn í á næstu dögum. Þegar það gerist fer þetta að líta vel út hjá okkur.“
	Hversu langt getur Keflavík náð í vetur?
	„Við getum gert það sem við viljum í vetur. Þurfum bara allir að vera á sömu blaðsíðunni og allir að draga þennan blessaða vagn í sömu áttina - þá verðum við á toppnum að keppa um alla þá titla sem í boði eru, rétt eins og Keflavík á alltaf að gera,“ sagði Arnar að lokum.
	 


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				