HSS
HSS

Íþróttir

Arnar æfir við heimsklassa aðstæður í Sviss
Föstudagur 9. maí 2014 kl. 10:57

Arnar æfir við heimsklassa aðstæður í Sviss

Stefnir á Evrópumótið í Wales

Arnar Helgi Lárusson er þessi dægrin staddur í Sviss við æfingar og keppni en hann berst nú við að ná lágmörkum í hjólastólakappakstri fyrir Evrópumeistaramót fatlaðra sem fram fer í borginni Swansea í Wales í ágústmánuði. Arnar Helgi er eini hjólastólakappakstursmaðurinn á Íslandi en greinin er ein sú allra stærsta og vinsælasta í íþróttum fatlaðra.

Arnar Helgi hefur þegar verið í Sviss í nokkra daga en senn líður að keppni og það vantar ekki álagið en okkar maður er skráður í 100m, 200m, 400m, 800m, 1500m, 5000m, 10000m keppnir sem og sjálft maraþonið! Allir helstu stólamenn heims eru samankomnir í Sviss og aðstæðurnar: „Þær eru einfaldlega þær bestu í heiminum, það er allt hérna, æfingahjól í kyrrstöðu fyrir tugi manns, innibrautir sem og útibrautir og 15-20 manns á æfingum svo maður er alltaf með einhvern við hliðin á sér sem er t.d. sambærilegur manni í getu,“ sagði Arnar Helgi sem nýtur nú leiðsagnar landsliðsþjálfara Svisslendinga í hjólastólakappakstri.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Paul er heimsklassa þjálfari og þetta er hálfgert „Mecca“ hérna í hjólastólakappakstri,“ sagði Arnar sem æfir m.a. með köppum á borð við Marcel Hug og Heinz Frei sem hafa unnið nánast allar keppnir sem í boði eru innan greinarinnar.

„Allt er þetta liður í því að tryggja sér þátttökurétt á Evrópumeistaramótinu í Swansea,“ sagði Arnar sem keppti fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramótinu í Lyon í Frakklandi síðastliðið sumar.

Arnar fór út með tvo keppnisstóla, sá eldri er keppnisstóll sem Lionsklúbbur Njarðvíkur gaf Arnari í upphafi ferilsins en síðan þá hefur Arnar smíðað nýjan stól sem hann tók með sér til Sviss og mun m.a. prófa hann í fyrsta sinn í alþjóðlegri keppni.

Hægt er að fylgjast með gangi mála á Facebook-síðu Arnars: https://www.facebook.com/ahl.racer?fref=ts