Arnar á opna þýska um helgina
Arnar Helgi Lárusson er þessa dagana staddur í Berlín í Þýskalandi þar sem hann tekur þátt í opna þýska meistaramótinu í frjálsum íþróttum fatlaðra. Arnar Helgi er um þessar mundir eini Íslendingurinn sem stundar hjólastólakappakstur (e. Wheelchair-racing) en í lok árs 2012 hélt hann utan til London og flutti heim sérsmíðaðan kappaksturshjólastól.
Næsta laugardag keppir Arnar Helgi í 100m sprett í Þýskalandi og á sunnudag keppir hann í 200m sprett. Arnar er að finna sig vel ytra því á æfingu í gær náði hann sínum besta tíma í 100m spretti er hann kom í mark á 18,95 sekúndum. Heimsmetið í þessari grein í flokki Arnars (T53) er 14,47 sek. og besti tími ársins til þessa er 14,68 sek. en þann tíma á Kanadamaðurinn Brent Lakatos. Framganga Arnars í íþróttinni hefur vakið verðskuldaða athygli því hann hefur aðeins æft í stólnum í um það bil hálft ár og er að reyna fyrir sér í einni stærstu og vinsælustu íþróttagrein fatlaðra í heiminum.
Hægt verður að fylgjast með framgangi Arnars á Facebook-síðu Íþróttasambands fatlaðra sem nálgast má hér: https://www.facebook.com/IthrottasambandFatladra