Íþróttir

Arnar á EM í Wales
Þriðjudagur 19. ágúst 2014 kl. 10:40

Arnar á EM í Wales

Evrópumeistaramót fatlaðra í frjálsum íþróttum var sett í Swansea í Wales í gær. Meðal keppenda á mótinu er Keflvíkingurinn Arnar Helgi Lárusson frá NES en hann keppir í hjólastólakappakstri.

Um 550 íþróttamenn frá 37 þjóðlöndum eru skráðir til leiks á EM að þessu sinni og teflir Ísland fram þremur íþróttamönnum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024