Arna Lind í byrjunarliði U17 ára landsliðsins gegn Pólverjum
Arna Lind Kristinsdóttir mun standa í markinu hjá U17 ára landsliði kvenna í dag gegn Póllandi í milliriðli EM og hefst leikurinn kl. 13:30 að íslenskum tíma. Báðar þessar þjóðir höfðu sigur í fyrstu leikjum sínum þar sem Ísland lagði England 2-0 meðan Pólland lagði Svíþjóð 3-1. Arna Lind stóð sig frábærlega gegn Englandi og hélt markinu hreinu en búist er við hörkuleik gegn Pólverjum í dag.
Arna Lind æfir með meistaraflokki Keflavíkur en hún stóð vaktina í markinu í öllum leikjum þeirra í sumar.