Betri Bær ljósanótt
Betri Bær ljósanótt

Íþróttir

Ari fór holu í höggi í Bergvíkinni
Laugardagur 23. júní 2012 kl. 12:28

Ari fór holu í höggi í Bergvíkinni

Ari Einarsson í Golfklúbbi Suðurnesja fór holu í höggi á hinni frægu Bergvík, 3. braut á Hólmsvelli í Leiru í vikunni. Ari sló mjög gott högg með 6-járni og boltinn lenti um 2-3 metra frá holu og rúllaði svo ofan í. Eins og flestir vita er Bergvíkin glæsileg golfhola þar sem slá þarf yfir Atlantshafið um 150 metra.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

„Þetta var auðvitað frábær tilfinning. Er þetta ekki það sem alla kylfinga dreymir um,“ sagði Ari sem var í móti hjá Oddfellowstúkunni Nirði í Keflavík. Ari var með Stefáni bróður sínum í liði í Texas scramble og þeir toppuðu daginn saman með því að sigra á mótinu.

Ljósmyndina tók Kjartan Már Kjartansson.

Bílakjarninn
Bílakjarninn