Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Árangurinn liggur í liðsheildinni
Mánudagur 22. september 2003 kl. 12:51

Árangurinn liggur í liðsheildinni

Íþróttaiðkun af öllum gerðum hefur alltaf verið stór hluti af samfélaginu hér á Suðurnesjum og áhugi á slíku er mikill hjá ungum sem öldnum. Knattspyrnan er þar engin undantekning þar sem lið Keflavíkur hefur lengst af spilað í efstu deild og jafnan átt ágætu fylgi að fagna. Það var því mörgum reiðarslag þegar liðið féll í 1. deild í lok síðasta sumars. Ekki voru allir sáttir við að liðið yrði ekki í efstu deild að ári og auk þess að vera nú í sömu deild og Njarðvíkingar, sem hafa yfirleitt staðið nágrönnum sínum langt að baki hvað varðar afrek á knattspyrnuvellinum. Nú, ári seinna, er annar tónn í mönnum þar sem Keflavíkurpiltar eru nýkrýndir meistarar 1. deildar og bíða spenntir eftir að spreyta sig meðal þeirra bestu á ný. Velgengninni er ekki síst þakkað þjálfara liðsins Milan Stefáni Jankovic sem gekk til liðs við Keflavík eftir síðasta sumar og hefur unnið mikið og gott starf með liðið. Undir hans stjórn hefur liðið spilað skemmtilegan bolta og skorað mikið af mörkum og undirstaða liðsins er þéttur kjarni heimamanna. Blaðamaður Víkurfrétta settist niður með Milan Jankovic eftir æfingu og spjallaði stuttlega við hann um tímabilið sem nú er lokið og framtíðina í úrvalsdeildinni.

-Hvernig er fyrsta árið með Keflavík búið að vera?

Sumarið hefur verið mjög gott en í raun hefur allt árið verið gott því að undirbúningstímabilið gekk vel og leikmennirnir hafa verið í góðu formi allan þennan tíma og andinn í liðinu er búinn að vera frábær. Það skilar sér í því að í öllum keppnum tímabilsins töpum við einungis þremur leikjum.

-Hvar liggur helsti styrkur liðsins að þínu mati?

Hann liggur aðallega í heildinni. Við leggjum áherslu á að allir leikmenn liðsins séu þátttakendur í spilinu. Árangurinn sést á því að varnarmennirnir okkar eru líka að skora mörk en ekki bara miðjumenn og framherjarnir.

-Finnst þér einhver leikmaður hafa borið af í sumar?

Nei, enginn einn leikmaður, bara Keflavík, allt liðið. Í hverjum leik voru alltaf  að minnsta kosti tveir eða þrír leikmenn að spila mjög vel þannig að ef einhver átti ekki góðan dag voru alltaf aðrir sem komu í staðinn.

-Finnst þér að liðið hafi haft gott af verunni í 1. deild?

Já það er mjög hollt fyrir ungu strákana að fá að upplifa það að vinna fimm og sex leiki í röð. Það gerir það að verkum að maður vill halda áfram að vinna og það á ábyggilega eftir að skila sér síðar.

-Glöggir fótboltaspekingar hafa bent á þá staðreynd að þrátt fyrir góðan árangur í 1. deildinni í sumar vann Keflavík bara einn leik gegn þeim þrem liðum sem á eftir komu í deildinni, þ.e. Víkingi, Þór og Stjörnunni. Hvað er hægt að lesa úr þeim úrslitum?

Það sem við lögðum upp með í sumar var vinna leikina gegn slakari liðunum en þegar kæmi að þeim liðum sem yrðu í toppbaráttunni væri áherslan lögð á að tapa ekki og spila þá frekar öruggt. Það gekk upp þar sem við töpum bara einum leik og vinnum alla  „auðveldari“ leikina.

-Eru einhverjar breytingar fyrirsjáanlegar á mannskapnum?

Já, Ómar verður ekki með okkur á næsta ári en ég býst ekki við að neinn annar fari. Þá verðum við að fá nýjan markvörð og kannski einn leikmann í viðbót en það er ekkert ákveðið í þeim málum.

-Að lokum, ertu bjartsýnn á gengið í úrvalsdeildinni á næsta ári?

Já, ég er að vonast til þess að við endum á meðal fimm efstu í úrvalsdeild og ég held að með nægum mannskap getum við komið skemmtilega á óvart.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024