Annar tapleikur hjá Gijon
Gijon lið Loga Gunnarssonar tapaði sínum öðrum leik á tímabilinu í gærdag þegar liðið lá 77-76 gegn C.B. Illeescas Urban CLM í spænsku LEB silfur deildinni í körfuknattleik.
Gijon vann síðasta leikhlutann í leiknum 23-13 en það dugði ekki til. Logi lék aðeins í fjórar mínútur í leiknum og tókst honum ekki að komast á blað.