Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Annar Bandaríkjamaður til Grindvíkinga
Sunnudagur 9. október 2011 kl. 15:28

Annar Bandaríkjamaður til Grindvíkinga

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur ráðið annan Bandaríkjamann fyrir átök vetrarins, kraftframherjann J´Nathan Bullock. Áður hafði leikstjórnandinn Giordan Watson verið ráðinn og kom hann til landsins í lok september. Beðið er eftir að dvalar- og atvinnuleyfi verði klárt fyrir Bullock en pappírarnir eru komnir til landsins og ætti kappinn að geta komið til landsins í næstu viku. www.umfg.is greinir frá.
Á heimasíðu Grindavíkur segir:

Eins og áður sagði er J´nath eins og hann kýs að kalla sig, kraftframherji og er á heimasíðu háskólans sem hann spilaði fyrir, Cleveland state, sagður vera 6,5 og 240 pund. Í hinum ýmsum umfjöllunum um hann er hann reyndar sagður vera nær því að vera 6,3 en á íslensku skulum við segja að hann sé rúmir 190 cm og rúm 100 kg.

J´nath var stjarna í high school, bæði í amerískum fótbolta og körfubolta og hann valdi að fara á styrk í körfubolta í Cleveland State. Þar var hann stigahæstur síðustu 3 árin og var á lokaári sínu með 15 stig og 7 fráköst.

Eftir að skólagöngu lauk, bauðst honum að fara til reynslu hjá ameríska fótboltaliðinu New York Jets og það segir kannski allt sem segja þarf um hversu mikill íþróttamaður J´Nath er. Hann komst reyndar ekki á samning og tók því aftur upp þráðinn í körfuboltanum og lék sem atvinnumaður í Ástralíu 2009-2010 og svo í Belgíu á síðasta tímabili.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024