Bygg
Bygg

Íþróttir

Annað sætið á vinabæjamóti
Mánudagur 2. júlí 2018 kl. 11:11

Annað sætið á vinabæjamóti

Dagana 26. - 28. júní tóku 13 - 15 ára stelpur og strákar úr Reykjanesbæ þátt í Norrænu vinabæjarmóti í körfubolta í Trollhättan í Svíþjóð. Þessi vinabæjarmót hafa verið haldin í mörg ár þar sem keppt er í nýrri íþrótt á hverju ári og keppt á víxl í vinabæjunum, en þeir eru Reykjanesbær, Trollhättan (Svíþjóð), Kristiansand (Noregur) og Kereva (Finnland). Áður var danski bærinn Hjørring einnig aðili að þessu samstarfi, en dró sig út úr því árið 2016.

Liðin úr Reykjanesbæ stóðu sig vel á mótinu í ár og urðu bæði strákarnir og stelpurnar í öðru sæti og unnu leikina nema gegn Finnlandi. Í fyrra var keppt í golfi og var mótið haldið hér í Reykjanesbæ þar sem Reykjanesbær bar sigur úr býtum. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Strákarnir frá Reykjanesbæ

Strákarnir frá Reykjanesbæ

Stelpurnar frá Reykjanesbæ

Stelpurnar frá Reykjanesbæ

Sigurvegararnir frá Kereva

Sigurvegararnir frá Finnlandi

Strákarnir að keppa gegn Kristiansand

Strákarnir að keppa gegn Kristiansand

Stelpurnar í skemmtigarðinum Liseberg

Stelpurnar í skemmtigarðinum Liseberg