Anna Þórunn sýnir á sér hina hliðina
Anna Þórunn Guðmunsdóttir, fyrirliði Grindavíkur situr fyrir svörum í „Hinni hliðinni" á fótbolta.net í dag. Anna Þórunn er uppalin í Grindavík og á að baki 75 leiki fyrir meistaraflokk og 33 landsleiki fyrir U19 og U17 ára landslið Íslands.
Fullt nafn: Anna Þórunn Guðmundsdóttir
Gælunafn: Vinir mínir kalla mig Anna, bestu vinir mínir kalla mig Anna Þórunn.
Aldur: Verð 21 í sumar
Hvað eldaðir þú síðast? Er voða lítið í því að elda, á mömmu sem er voða dugleg að elda það sem ég vil.
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Sem mest bara, en alls ekki hvítlauk.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Vampire diaries af fleiri ástæðum en bara góður söguþráður!
Besta bíómyndin? Get horft endalaust á Lord of the Rings seríuna.
Uppáhaldstónlistarmaður: Valdimar er að slá í gegn núna, annars er Beyonce alltaf góð líka.
Uppáhaldsdrykkur? Vatn
Uppáhalds vefsíða? Facebook
Frægasti vinur þinn á Facebook? Er Alli Magg ekki orðinn heimsfrægur eftir þessa vítaspyrnu?
Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki (ef já, hvernig þá)? Nei.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Vera betri en hann.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Myndi segja KR en á svo marga ættingja í þessu félagi að maður veit aldrei..
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Stóri bróðir minn.
Erfiðasti andstæðingur? Ég sjálf á vondum degi.
Ekki erfiðasti andstæðingur? Litli bróðir minn Lárus sem þykist þó vera betri en ég.
Besti samherjinn? Allar í liðinu eru virkilega góðir samherjar, verð samt að segja að Alma Rut standi upp úr.
Sætasti sigurinn? Þegar við unnum Völsung á Húsavík og komumst upp í úrvalsdeild.
Mestu vonbrigði? Að fá tvö mörk á okkur á seinustu mínútunum á móti Svíþjóð á EM U-19 og komast því ekki í undanúrslitin.
Hvað er þitt uppáhaldslið í enska boltanum? Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann í heiminum í þitt lið. Hver yrði það? Marta
Hvern í liðinu þínu myndir þú kjósa á þing? Guðrúnu Gunnarsdóttur án efa!
Besta knattspyrnukona Íslands í dag? Sara Björk
Efnilegasta knattspyrnukona landsins? Dagný í Val
Fallegasti knattspyrnumaðurinn? Páll Guðmundsson
Grófasti leikmaður deildarinnar? Embla
Besti íþróttafréttamaðurinn? Hjörvar? hann veit allavega allt um fótbolta!
Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Einhverjar yngri gellur, örugglega Guðný , hún fær ekki frið fyrir símanum sínumþ
Hefurðu skorað sjálfsmark? Já, því miður.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Við mættum liði einu sinni þar sem markmaðurinn í því liði var nýbúinn að skipti yfir til þeirra frá okkur, síðan í leiknum , þegar ekki mikið var búið af honum áttum við skot á markið og hún ætlaði svo rosalega mikið að verja boltann að hún skutlaði sér aðeins of hratt og lenti á stönginni og gat ekki spilað meira.. Okkur fannst það öllum rosalega fyndið þá, en sem betur fer meiddi hún sig ekki mikið.
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? Veit ekki alveg , 15 eða 16 ára.. þegar Grindavik stofnaði meistaraflokk aftur eftir að hann hafði legið niðri í nokkur ár.
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Engu fullkomin íþrótt!
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Hita upp.
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Bara einhver staður þar sem er gott veður og skemmtilegt fólk.
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? 10 mín.
Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? MJ.
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já fylgist aðeins með Grindavík í körfunni.
Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Vá svo langt síðan að ég man það ekki.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Copa
Í hverju varstu/ertu lélegust í skóla? Engu, var góð í skóla.
Vandræðalegasta augnablik? Of vandræðalegt til að segja frá hér..
Komdu með eina staðreynd um þig sem flestir vita ekki um: Ég er með tatto á annarri rasskinninni, afhverju segi ég samt ekki...