Anita Lind skoraði gegn Svartfjallalandi
U19 ára landslið kvenna í knattspyrnu sigraði Svartfjallaland 7-0 í fyrsta leik sínum í undankeppni Evrópumótsins í dag. Keflvíkingurinn Anita Lind Daníelsdóttir skoraði þar eitt mark. Riðill Íslands er spilaður í Duisburg í Þýskalandi.
Auk Anitu er Grindvíkingurinn Dröfn Einarsdóttir einnig í landsliðinu. Ísland mætir Kosóvó á föstudaginn og Þýskalandi á mánudaginn.