Andri Rúnar bestur
- leikmaður 20. umferðar hjá fotbolti.net
Leikmaður Grindavíkur í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, Andri Rúnar Bjarnason var kosinn leikmaður 20. umferðar á síðunni fotbolti.net. Andri skoraði tvö mörk í sigri Grindvíkinga á Breiðablik síðastliðinn sunnudag og skoraði mark úr aukaspyrnu. „Ég er búinn að æfa þetta í allt sumar. Ég fékk leyfi frá strákunum til að skjóta. Þetta er fyrsta markið úr aukaspyrnu hjá mér í sumar og það er fínt að sýna að að maður getur skorað mismunandi mörk,“ segir Andri Rúnar í samtali við fotbolti.net.
Tveir leikir eru eftir í Pepsi-deild karla og hefur Andri Rúnar skorað 18 mörk í tuttugu leikjum og vantar honum aðeins eitt mark til viðbótar til þess að jafna markametið í efstu deild.