Þriðjudagur 26. mars 2019 kl. 05:08
				  
				Andri Gíslason nýr leikmaður Njarðvíkur
				
				
				
	Andri Gíslason hefur bæst við leikmannahóp Njarðvíkur í knattspyrnu. Andri er fæddur 1992 og hefur leikið 108 mótsleiki með nokkrum félögum og gert í þeim 48 mörk.
	 
	Andri lék með Víði sl. sumar en kemur frá Austra en hann hafði í hyggju að spila með Fjarðabyggð í ár en snérist hugur.