Andri á vit ævintýra í háskólaboltanum
Hinn ungi og upprennandi sóknarmaður Njarðvíkinga í knattspyrnu, Andri Fannar Freysson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Njarðvíkinga í bili. Andri hefur söðlað um og hafið nám í Loyola háskólanum í Marylandfylki Bandaríkjanna. Andri fékk fullan skólastyrk til þess að leika knattspyrnu með liðinu sem leikur í efstu deild háskólaboltans þar ytra.
Andri var valinn efnilegasti leikmaður 2. deildarinnar í fyrra þar sem hann skoraði 17 mörk þá 18 ára gamall. Í vor var Andri til reynslu hjá nokkrum úrvalsdeildarfélögum en hugur hans var þá þegar farinn að leita út. Skólinn sem Andri mun leika með er afar virtur og hann segir spennandi tíma framundan.
„Lífið hérna úti er mjög ljúft þessa dagana, síðan ég kom hefur verið yfir 30 stiga hiti,“ en undirbúningstímabilið er í fullum gangi hjá liðinu. „Við hlaupum þrisvar sinnum í viku og lyftum þrisvar sinnum með einkaþjálfara og reynum að hittast til að spila minnst tvisvar í viku.“ Andri segir að það hafi tekið smá tíma að aðlagast hitanum og þar sem hann hafi verið meiddur var hann ekki upp á sitt besta þegar hann hélt út, en hann meiddist fremur illa með Njarðvíkingum fyrr í sumar. „Ég verð kominn í dúndur form þegar tímabilið byrjar,“ segir Andri léttur í bragði.
En hvernig kom það til að Andri ákvað að halda á vit ævintýranna?
„Ég fór til Flórída í september í fyrra og fór þá á æfingu með Embry-Riddle skólanum sem Viktor Guðnason félagi minn hjá Njarðvík er í. Þjálfarinn þar þekkti síðan þjálfarann hér í Loyola og lét vita af mér. Nokkrum vikum eftir þetta fékk ég tölvupóst frá honum um hvort ég hafði áhuga á að koma. Þá var ég í sambandi við nokkra skóla í Bandaríkjunum en hann flaug síðan til Íslands og var hérna í nokkra daga að skoða mig. Hann bauð mér síðan fullan skólastyrk og þá var ekki aftur snúið,“ segir Andri.
Skólinn lítur gríðarlega vel út að sögn Andra og umhverfið í kringum skólann er glæsilegt. Andri hélt út fyrir skömmu og er þegar byrjaður að kíkja í skólabækurnar. „Ég er í tveimur fögum í sumarskóla, heimspeki og listatíma.“ Andri viðurkennir það fúslega að það geti verið frekar erfitt að skilja heimspekina á ensku en hann verður þó betri með hverjum tímanum. „Hins vegar er maður að brillera í listatímanum og þar kemur reynslan frá Tjarnarseli sterk inn,“ segir Andri og hlær.
Skólinn byrjar síðan af alvöru um næstu mánaðamót. „Fyrsti leikurinn okkar er síðan útileikur þann 25. ágúst á móti St. Francis og síðan er heimaleikur 31. ágúst á móti La Salle sem verður spennandi þar sem allir nemendur í skólanum eru neyddir til að mæta á leikinn að horfa á, og gríðarleg stemming myndast alltaf.“ Heimavöllur liðsins er glæsilegur en hann var tekinn í notkun árið 2008 og tekur 7000 manns.
Andri Fannar býr í íbúð með 2 herbergjum, stofu og eldhúsi, ásamt öðrum nýliðum liðsins, Bandaríkjamanni, Þjóðverja og Breta sem Andri segir vera fínustu pilta. Til stendur að flytja í stærri íbúð þar sem sex nýliðar munu búa saman.
Var sárt að kveðja heimahagana?
„Að sjálfsögðu var mjög sárt að kveðja heimahagana þá sérstaklega kærustuna og fjölskyldumeðlimi og bíð ég spenntur eftir að fá þau í heimsókn. En með Skype og facebook og öllu því dóti þá er maður alltaf í sambandi við fólkið heima og það hjálpar til. Það var einnig leiðinlegt að geta ekkert hjálpað mínum mönnum í 2. deildinni áður en ég fór út,“ sagði Andri Fannar að lokum.