Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Amelía Rún valin í U19 landslið Íslands
Amelía Rún í leik Keflavíkur og ÍBV í gær, hún er í æfingahóp U19 landsliðs Íslands. VF-mynd: JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 28. maí 2021 kl. 15:02

Amelía Rún valin í U19 landslið Íslands

Keflvíkingurinn Amelía Rún Fjeldsted hefur verið valin í æfingahóp U19 landsliðs kvenna sem mun æfa á Selfossi dagana 7. til 10. júní næstkomandi.

Það kemur fram á vefsíðu KSÍ í dag að Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hafi valið 22 leikmenn í hópinn og koma þeir frá tólf félögum.

U19 kvenna undirbýr sig fyrir undankeppni EM 2022/2023 þar sem Ísland er í riðli með Frakklandi, Svíþjóð og Serbíu í fyrstu umferð. Riðillinn verður leikinn í september.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Hópinn skipa:
Birna Kristín Björnsdóttir | Augnablik
Hildur Lilja Ágústsdóttir | Augnablik
Írena Héðinsdóttir Gonzales | Augnablik
Þórhildur Þórhallsdóttir | Breiðablik
Bryndís Arna Níelsdóttir | Fylkir
Tinna Brá Magnúsdóttir | Fylkir
Sara Dögg Ásþórsdóttir | Grótta
Mikaela Nótt Pétursdóttir | Haukar
Aníta Ólafsdóttir | ÍA
Helena Jónsdóttir | ÍBV
Ragna Sara Magnúsdóttir | ÍBV
Amelía Rún Fjeldsted | Keflavík
Sædís Rún Heiðarsdóttir | Stjarnan
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir | Stjarnan
Alma Gui Mathiesen | Stjarnan
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir | Selfoss
Jelena Tinna Kujundzic | Þróttur R.
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir | Þróttur R.
Andrea Rut Bjarnadóttir | Þróttur R.
María Catharina Ólafsdóttir Gros | Þór
Jakobína Hjörvarsdóttir | Þór
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir | Þór