Amani á leið til Tindastóls
Stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur og Friðrik Ragnarsson þjálfari ákváðu í gær að segja upp samningi við Amani Daanish þar sem hann þótti ekki standa undir væntingum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun hvort fenginn verði nýr leikmaður í hans stað, samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu UMFG sem greinir frá þessu.
En Amani var ekki lengi verkefnalaus því hann mun vera á lið til Tindastóls. Karl Jónsson, þjálfari Tindastóls segir á heimasíðu félagsins að þó Amani hafi ekki staðið undir væntingum Grindavíkinga þýði það ekki að hann sé slæmur leikmaður.
Daanish lék tvo deildarleiki með Grindvíkingum í Iceland Express deildinni og gerði í þeim 17,3 stig að meðaltali í leik og tók 8,7 fráköst.
Mynd/www.karfan.is – Amani Daanish í spennuleik Grindavíkur og Njarðvíkur á dögunum.