Allt vitlaust í Garðabænum í kvöld - Ég hef haft töluvert betri varnarmenn á mér en þennan Marvin
Það verður líklega allt brjálað í Ásgarði í Garðabæ í kvöld en þá eigast við Stjarnan og Keflavík í oddaleik í 8-liða úrslitum karla í Iceland Express-deildinni í körfubolta. Stjarnan vann fyrsta leik liðanna 95-87 á sínum heimavelli en Keflvíkingar jöfnuðu með 82-88 sigri í Toyota-höllinni.
Til þess að auka á dramatíkina í kringum leikina þá ákváðu Stjörnumenn að kæra olnbogaskot sem Magnús Gunnarsson veitti Marvini Valdimarssyni í leik númer tvö. Garðbæingar vildu Magnús í bann en því var vísað á bug. Þessir tveir eiga líklega eftir að elda grátt silfur saman í kvöld enda tveir af bestu leikmönnum deildarinnar þarna á ferðinni.
Magnús sagði í samtali við heimasíðu Keflavíkur að leik loknum að hann hefði nú tekist á við mun betri varnarmenn en Marvin. „Ég hef haft töluvert betri varnarmenn á mér en þennan Marvin. Ég aðlaga því bara minn leik að þessu og nú verða liðsfélagar mínir að setja skotin niður sem þeir fá loksins því núna er Magnús Þór loksins farinn að gefa boltann,“ sagði Magnús kokhraustur að vanda.
Spjallið má sjá hér.