HSS
HSS

Íþróttir

Allt undir hjá erkifjendunum í kvöld
Mánudagur 23. janúar 2012 kl. 11:49

Allt undir hjá erkifjendunum í kvöld

Toppliðin í kvennakörfuboltanum, Keflavík og Njarðvík mætast í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins í Ljónagryfjunni í kvöld. Þarna er um alvöru stórleik að ræða og væntanlega verður barist til síðasta blóðdropa enda mikið í húfi. Keflvíkingar eru efstir í deildinni og eru ríkjandi bikarmeistarar. Liðið bætti við sig erlendum leikmanni fyrir stuttu svo þær munu mæta sterkar til leiks. Njarðvíkingar sigruðu síðustu viðureign liðanna örugglega og hafa verið á miklu skriði undanfarið.

Körfuknattleiksáhugafólk í Reykjanesbæ og víðar lætur væntanlega ekki þennan mikilvæga leik erkifjendanna framhjá sér fara og því má búast við fjölmenni á leiknum sem hefst klukkan 19:15

Myndir úr safni: Njarðvíkingar fögnuðu sigri síðast en hvað gerist í kvöld?

Bílakjarninn
Bílakjarninn