Allir velkomnir í Strandarhlaup Þróttar
Strandarhlaupið er hluti af fjölskylduhátíð sveitarfélagsins Voga og fer fram laugardaginn 13. ágúst. Allir hlauparar eru velkomnir, byrjendur sem og lengra komnir, segir á heimasíðu Þróttar.
Hlaupið verður ræst við íþróttahúsið í Vogum, Hafnargötu 17 og hlaupnir verða 5 km og 10 km með tímatöku. Hlaupaleiðir: 5 km hlaupið er ræst við Íþróttamiðstöðina. Hlaupið er út Stapaveg þar sem komið er inná malarveg. Eftir 3 km er stuttur utanvegakafli uns komið er inná göngustígakerfi þar sem hlaupið er með sjónum, umhverfis Vogatjörn og að Íþróttamiðstöðinni.
10 km hlaupið er ræst við Íþróttamiðstöðina og liggur um Vatnsleysustrandarveg. 3 km eru á gömlum malarslóða, síðan á Vatnsleysustrandarvegi í fallegu sveitaumhverfi. Að lokum er hlaupinn einfaldur hringur á göngustígum bæjarins að Íþróttamiðstöðinni.
Skráning fer fram hér á hlaup.is. Athugið að skráningargjald hækkar á hlaupadegi og eru þátttakendur því hvattir til að forskrá sig. Forskráning er til miðnættis föstudaginn 12. ágúst 2016. Skráning á keppnisdegi verður í íþróttahúsinu frá kl. 9:00 til 9:40 fyrir hlaup.