Allir Suðurnesjamenn unnu til verðlauna
Alls sjö Norðurlandameistara í taekwondo
Norðurlandamótið í taekwondo var haldið í íþróttahúsinu við Sunnubraut um helgina. Suðurnesjamenn voru afar sigursælir á mótinu og eignuðust alls sjö Norðurlandameistara um helgina. Alls voru 20 keppendur frá Suðurnesjum og unnu þeir allir til verðlauna.
Þetta er í þriðja sinn sem Norðurlandamótið er haldið á Íslandi, en síðast var það haldið árið 2009 en vafalaust er um sterkasta mót að ræða sem haldið hefur verið haldið á Suðurnesjunum. Tæplega 200 keppendur mættu til leiks á mótinu frá Íslandi, Noregi, Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð. Það voru 20 keppendur frá Suðurnesjunum og það er skemmst frá því að segja að allir unnu til verðlauna. Taekwondodeild Keflavíkur eignaðst sjö Norðurlandameistara á mótinu og íslenska liðið eignaðist 16 Norðurlandameistara. Mun þetta vera besti árangur sem íslenska liðið hefur náð, en áður hafði Ísland mest eignast fimm Norðurlandameistara á einu móti. Auk þess vann íslenska liðið stigakeppni liða á móitnu í fyrsta sinn í sögunni. Keflvíkingar voru með flest verðlaunin fyrir íslenska liðið á mótinu. Eftirfarandi er árangurinn hjá Suðurnjesamönnum úr þeim fjórum keppnisgreinum sem keppt var í á mótinu.
Adda Paula Ómarsdóttir - 3 x silfur
Ágúst Kristinn Eðvarðsson - 1x gull og 1x brons
Ástrós Brynjarsdóttir - 1x gull og 2x silfur
Bjarni Júlíus Jónsson - 2x gull og 1x silfur
Björn Lúkas Haraldsson - 2x brons
Daníel Arnar Ragnarsson - 2x brons
Daníel Aagard Nilsen - 1x gull, 1x silfur og 1x brons
Dýrleif Rúnarsdóttir - 1x silfur
Gísli Þráinn Þorsteinsson - 1x brons
Helgi Rafn Guðmundsson - 1x silfur og 1x brons
Karel Bergmann Gunnarsson - 1x gull
Kolbrún Guðjónsdóttir - 1x brons
Kristmundur Gíslason - 1x silfur
Normandy Del Rosario - 1x brons
Ólafur Þorsteinn Skúlason - 1x silfur
Svanur Þór Mikaelsson - 2x gull
Sverrir Örvar Elefsen 1x gull
Victoría Ósk Anítudóttir 1x brons
Ægir Már Baldvinsson - 2x silfur og 1x brons
Ævar Týr Sigurðarsson - 2x brons