Alen og Lasse skrifa undir
Slóvenski varnarmaðurinn Alen Sutej 23.ára og danski markvörðurinn Lasse Jörgensen 24.ára skrifuðu undir samninga við Keflavík sl. þriðjudag og gilda samningarnir til loka keppnistímabils 2009. Þetta er gríðarlegur styrkur fyrir liðið enda báðir leikmennirnir mjög góðir og munu styrkja liðið mikið. Þar með hafa fjórir leikmenn gengið til liðs við okkur frá síðasta tímabili, en hinir eru Haukur Ingi og Bjarni Hólm. Þess má geta að átta leikmenn frá því í fyrra eru farnir, í önnur lið eða meiddir.