Áhorfendur fá frítt inn í Ljónagryfjuna í kvöld
Í kvöld klukkan 19:15 mæta Njarðvíkingar Haukum í Intersport-Deildinni í körfuknattleik í Njarðvík. Stjórn Njarðvíkur hefur ákveðið að bjóða frítt á leikinn í kvöld. Eru allir hvattir til að mæta og hvetja liðið áfram. Njarðvíkingar hafa rekið Lackey og Sayman og spila því kanalausir í kvöld og verður gaman að fylgjast með ungu strákunum í liðinu sem fá væntanlega að spreyta sig í kvöld.
Mynd - Njarðvíkingar fagna bikarmeistaratitlinum