Áhorfendum fjölgaði á Nettóvellinum
Að meðaltali mættu 872 áhorfendur á heimaleik hjá Pepsi-deildarliði Keflavíkur karla á nýafstöðnu tímabili. 1057 áhorfendur mættu að meðaltali á leik í deildinni en Keflvíkingar eru í 8. sæti hvað varðar áhorfendafjölda í deildinni í sumar. Árið 2012 mættu á jafnaði 856 áhorfendur á Nettóvöllinn í Keflavík og því hefur áhorfendum fjölgað lítillega milli ára. Keflvíkingar voru einnig í 8. sæti deildarinnar hvað varðar aðsókn árið 2012.
Alls mættu 139.576 áhorfendur á leikina 132 í Pepsi-deild karla á nýliðnu keppnistímabili sem gerir 1.057 áhorfendur að meðaltali á hvern leik. Þetta eru fleiri en mættu á leiki árið 2012 en þá voru 1.034 áhorfendur að meðaltali á leikjum Pepsi-deildar. Árið 2007 mættu flestir áhorfendur að jafnaði á leik í efstu deild karla, síðan árið 2000 eða 1329 áhorfendur.